
Minni hætta á þvagfærasýkingum
06/06/2023
Luja™ er fyrsti og eini aftöppunar þvagleggurinn með Micro-hole Zone Technology, sem er hannaður til að minnka áhættu á þvagfærasýkingum* Þegar þvagrennsli hættir er þvagblaðran algerlega tóm. Tilfærsla á þvaglegg er því ekki nauðsynleg.
Luja fæst í tveim pakkningastærðum, standard – eða sem vasapakkning.
Luja er fyrsti og eini aftöppunarþvagleggurinn sem er með yfir en 80 míkró göt en það tryggir samfellt þvagrennsli. Þegar rennslið hættir er blaðran tóm. Þannig veistu að aftöppun er lokið. Enginn þörf er á tilfærslu þvagleggs sem gerir aftöppun auðveldari. Hönnun leggsins miðar að því að tæma blöðruna fullkomlega til að draga úr líkum á þvagfærasýkingum.
Aðrir eiginleikar Luja:
- Triple Action Coating Technology er yfirborðsmeðhöndlun sem tryggir jafnt, slétt og rakt yfirborð án þurra svæða. Lágmarkar skaða á slímhúð þvagrásar.
- Sveigjanlegur kúlulaga endi, auðveldar uppsetningu.
- Mjúkt grip sem tryggir að notandinn hefur fulla stjórn á þvagleggnum við uppsetningu.
- Þurr varnarfilma umlykur þvaglegginn sem gerir notandanum kleift að setja þvaglegginn upp án þess að snerta yfirborð hans. Varnarfilman tryggir því hreina blöðrutæmingu.
Eftir notkun er hægt að loka þvaleggnum aftur, hægt er að brjóta umbúðirnar saman og loka og farga þar sem hentar. Hlutlausar umbúðir Luja bera þess ekki merki að um hjúkrunarvöru að ræða.
Fleiri fréttir
Mars er mættur sem þýðir að Mottumars er hafinn. Eins og fyrri ár er hann tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum hjá
60 ára sögu Speedo var fagnað í Sundhöll Hafnarfjarðar á haustmánuðum 2023 með glæsilegum hætti þar sem sundföt síðustu áratuga
H verslun heldur áfram að vaxa og á haustmánuðum opnaði ný boltabúð á Bíldshöfða og hefur hún hlotið góðar


