Árið 2025 var ár framfara hjá Ósum. Lykilverkefni undanfarinna ára tóku að skila sýnilegum árangri, samhliða frekari þróun og uppbyggingu samstæðunnar.
Áhersla ársins var á að styrkja rekstur og skerpa á starfseminni. Ný svið voru sett á laggirnar til að efla vöruframboð og styðja betur við þróun, þjónustu og daglegan rekstur. Markvisst var unnið að því að auka samvinnu milli félaga þvert á samstæðuna.
Framfarir í nýsköpun og þjónustu endurspegluðu skýra stefnu í átt að bættri heilbrigðisþjónustu. Kynning og innleiðing fjarheilbrigðislausnarinnar Unu markar mikilvægt skref í að auka aðgengi og bregðast við áskorunum í kerfinu. Ósar tóku jafnframt virkan þátt í umræðu um þróun heilbrigðisþjónustu og lögðu sitt af mörkum með miðlun þekkingar og kynningu á nýjum lausnum og meðferðum.
Samfélagsuppgjör Ósa
Hjá Ósum er sjálfbær þróun stöðug vegferð sem kallar á heildarsýn og langtímahugsun.
Uppgjör okkar sýnir niðurstöður og þróun þriggja meginþátta UFS sjálfbærnimælikvarðans á gagnsæjan og samanburðarhæfan hátt.
Samfélagsábyrgð
Ósar hafa sett sér stefnu um samfélagslega ábyrgð og sjálfbæra þróun sem tekur til félagsins í heild. Stefnan byggir á fjórum meginstoðum sem móta áherslur og þau markmið og lykilverkefni sem unnið er að hverju sinni en sérstök áhersla er lögð á að fylgja fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna umsjálfbæra þróun.

Markmið okkar er að hafa áhrif á heilsu fólks og auka lífsgæði

Markmið okkar er að kynjabundinn launamunur sé undir 2%

Markmið okkar er að tryggja góð störf og rekstaröryggi með heilbrigðum rekstri

Markmið okkar er að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif í allri
virðiskeðjunni
Markvert á árinu
Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara
Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi
Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í
Á vormánuðum fór nýr vefur Icepharma í loftið. Þar má finna upplýsingar um starfsemina, birgja og samstarfsaðila og starfsfólk svo







