
Fjarheilbrigðislausnin Una kynnt á Hjúkrun
01/10/2025
Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem vilja eða þurfa að fylgjast með eigin heilsufari og njóta eftirlits eða ráðgjafar í gegnum nútímalega og aðgengilega lausn. Í Unu appinu er hægt að skrá og fylgjast með mælingum og eiga samskipti við heilbrigðisstarfsfólk. Lausnin er aðgengileg og áreiðanleg og hefur verið samþykkt af Embætti Landlæknis sem örugga fjarheilbrigðislausn.

Stefanía Fanney Björgvinsdóttir og Sturla Geir Pálsson kynntu Unu fyrir þátttakendum á Hjúkrun 2025.
Meðal þess sem Una býður upp á fyrir notendur er:
- Áminningar um verkefni dagsins
- Sjálfkrafa skráning á heilsufarsmælingum
- Yfirsýn um núverandi stöðu
- Fjölbreytt fræðsluefni
- Myndsímtöl
- Mælingar sendar beint til umönnunaraðila
- Utanumhald um tímabókanir
Lausnin auðveldar einnig heilbrigðisstarfsfólki að sinna sínum skjólstæðingum. Una fyrir heilbrigðisstarfsfólk heudlru utan um skjólstæðinga, forgangsraðar eftir mikilvægi verkefna og auðveldar samskipti.
Fyrir áhugasöm má lesa meira um Unu á vefsíðunni https://www.unaheilsa.is
Fleiri greinar
At the Hjúkrun 2025 conference, Icepharma Velferð introduced the new digital health care platform Una Heilsa. Una is a solution
In 2024, Sunna Fertility Clinic opened its doors at Urðarhvarf. Sunna was founded with the aim of providing individuals undergoing
In 2025, new promotional content for NOW supplements was produced by a talented team of marketing specialists and designers at




