Heilbrigður jarðvegur fyrir heilsubætandi starfsemi

Heilsa er grunnstoð allrar starfsemi Ósa. Við hlúum að heilsu starfsfólks með fjölbreyttum hætti, á sama tíma og starfsfólkið leggur sitt af mörkum daglega til að bæta heilsu og lífsgæði landsmanna.

Dótturfélög samstæðunnar sinna fjölbreyttum geirum heilsu – allt frá lyfjum, hjúkrunarvörum og frjósemisþjónustu til vítamína, tannbursta og hlaupaskóa.

Með þessari breidd í vöru- og þjónustuframboði, ásamt ástríðu og sérþekkingu starfsfólks, gegnum við lykilhlutverki í að efla heilsu á ólíkum sviðum samfélagsins.

Heilsuefling starfsfólks Ósa

Hjá Ósum leggjum við ríka áherslu á heilsueflingu starfsfólks, enda er heilbrigður og öflugur vinnustaður forsenda árangurs. Sem lífæð heilbrigðis vinnum við ekki aðeins að velferð samfélagsins heldur einnig að vellíðan okkar eigin starfsfólks.

Heilsuvika Ósa er haldin ár hvert og er tileinkuð hreyfingu, næringu og andlegri vellíðan. Boðið er upp á fjölbreytta viðburði, þar á meðal sameiginlegar æfingar, göngur, fræðslu um meltingu og þarmaflóru og vitundarvakningu um mikilvægi núvitundar og hugarró. Með slíkum verkefnum styrkjum við ekki aðeins heilsu starfsfólks heldur einnig menningu okkar sem vinnustaðar þar sem vellíðan, heilbrigði og samhugur eru í forgrunni.

  • Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara

    22/01/2026
  • Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi

    01/10/2025
  • Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í

    22/08/2025
  • Á aðeins fjórum árum hefur notkun Íslendinga á lífrænum hreinsiefnum frá Sonett vaxið yfir 300%. Þessi þróun er ekki tilviljun,

    26/05/2025

Heilsusamlegt mataræði á Brasserie Ósar

Á Brasserie Ósar er lögð lykiláhersla á hollt og heilnæmt fæði. Starfsfólki Ósa og dótturfélaga stendur til boða heitur matur í hádeginu og þá er lagt mikið upp úr salatbar þar sem er mikið og gott úrval af hollu meðlæti. Á Brasserie Ósum hefur starfsfólk aðgang að vatnsstöð með hreinu og köldu vatni, vítamínum og bætiefnum. Sömuleiðis hefur starfsfólk aðgengi að heilsusamlegum morgunverði. Utan hefðbundins opnunartíma Brasserie Ósa hafa starfsmann möguleika á að grípa sér hollt millimál.