Samfélagsskýrsla
Ósa 2025

Árið 2025 var ár framfara hjá Ósum. Lykilverkefni undanfarinna ára tóku að skila sýnilegum árangri, samhliða frekari þróun og uppbyggingu samstæðunnar.

Áhersla ársins var á að styrkja rekstur og skerpa á starfseminni. Ný svið voru sett á laggirnar til að efla vöruframboð og styðja betur við þróun, þjónustu og daglegan rekstur. Markvisst var unnið að því að auka samvinnu milli félaga þvert á samstæðuna.

Framfarir í nýsköpun og þjónustu endurspegluðu skýra stefnu í átt að bættri heilbrigðisþjónustu. Kynning og innleiðing fjarheilbrigðislausnarinnar Unu markar mikilvægt skref í að auka aðgengi og bregðast við áskorunum í kerfinu. Ósar tóku jafnframt virkan þátt í umræðu um þróun heilbrigðisþjónustu og lögðu sitt af mörkum með miðlun þekkingar og kynningu á nýjum lausnum og meðferðum.

Stjórnarhættir og ábyrgur rekstur voru áfram í forgrunni. Unnið var að því að styrkja upplýsingaöryggi, móta stefnu um notkun gervigreindar og skerpa á stefnumótun og samskiptum innan samstæðunnar, meðal annars með samræmingu á vörumerkjum og skýrari framsetningu þeirra. Áfram var lögð áhersla á gagnsæi, gæði og traust í samskiptum við hagaðila, sem og góðan árangur í jafnréttis- og jafnlaunamálum.

Umhverfismál voru samþætt rekstrinum með markvissum hætti. Unnið var að því að draga úr umhverfisáhrifum í allri virðiskeðjunni, bæta yfirsýn yfir kolefnisspor og efla flokkun og endurvinnslu. Jafnframt voru gerðar auknar kröfur til samstarfsaðila og unnið að því að efla vitund innan samstæðunnar um tengsl umhverfis, heilsu og ábyrgra starfshátta.

Samfélagsskýrsla Ósa fyrir árið 2025 gefur innsýn í þessa vegferð, þar sem heilbrigður rekstur, ábyrgir stjórnarhættir og markviss umhverfisvinna mynda grunn að áframhaldandi vexti og verðmætasköpun fyrir samfélagið.

Samfélagsuppgjör Ósa

Hjá Ósum er sjálfbær þróun stöðug vegferð sem kallar á heildarsýn og langtímahugsun.

Uppgjör okkar sýnir niðurstöður og þróun þriggja meginþátta UFS sjálfbærnimælikvarðans á gagnsæjan og samanburðarhæfan hátt.

Stjórnarhættir

Uppgjör stjórnarhátta fyrir árið 2025.

Félagslegir þættir

Uppgjör félagslegra þátta fyrir árið 2025.

Umhverfismál

Uppgjör umhverfismála fyrir árið 2025.

Markvert á árinu

  • Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara

    22/01/2026
  • Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi

    01/10/2025
  • Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í

    22/08/2025
  • Á vormánuðum fór nýr vefur Icepharma í loftið. Þar má finna upplýsingar um starfsemina, birgja og samstarfsaðila og starfsfólk svo

    03/06/2025