
Velferðalag Icepharma
10/12/2024
Árið 2024 var ár framfara hjá velferðartæknideild Icepharma. Lögð var áhersla á að kynna og innleiða nýjar tæknilausnir sem bæta heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Áframhaldandi kynning á Evondos sjálfvirka lyfjaskammtaranum var einn af hápunktunum. Til dæmis gaf heimahjúkrun HSN á Akureyri yfir 50.000 skammta með aðstoð tækisins, sem jók meðferðarheldni og minnkaði álag á hjúkrunarfræðinga.
Deildin hélt einnig kynningar og tók þátt í ráðstefnum, þar á meðal Velferðartæknimessu á Ólafsfirði og Sjónaukanum á Akureyri, þar sem hún fjallaði um nýsköpun og framtíðartækifæri í velferðartækni. Einnig átti deildin mikilvæg samtöl við hagaðila, þar á meðal heilbrigðisráðuneytið, um hvernig tækninýjungar geti stutt við heilbrigðisþjónustu, aukið öryggi og bætt lífsgæði. Slíkt samtal er lykilatriði til að mæta áskorunum framtíðar og tryggja að kerfið nýti tæknina sem best.
Með þessum aðgerðum undirstrikar Icepharma leiðtogahlutverk sitt í að móta öflugt heilsu- og velferðarsamfélag framtíðarinnar.
Helga Dagný er framkvæmdastjóri Icepharma Velferð. Hún fer hér yfir nokkrar helstu áskoranir í daglegum rekstri heilbrigðisstofnana og hvernig velferðartækni getur verið stór hluti af lausninni:
Fleiri greinar
Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara
Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi
Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í



