Magnús Baldvinsson, röntgenlæknir og eigandi Röntgen Domus, María Bragadóttir, framkvæmdastjóri Þróunar og rekstrar hjá Ósum og Jóhann Ingi Kristjánsson, stjórnarformaður Ósa

Röntgen Domus hluti af Ósum

18/06/2026

Ósar – lífæð heilbrigðis hf. og Röntgen Domus hafa undirritað samkomulag um að Röntgen Domus verði hluti af Ósa-samstæðunni. Röntgen Domus er eitt rótgrónasta fyrirtæki landsins á sviði myndgreiningar og skapar aðkoma Ósa félaginu aukið svigrúm til frekari þróunar og uppbyggingar.

„Röntgen Domus býr yfir mikilli sérþekkingu og veitir samfélaginu dýrmæta þjónustu. Hlutverk Ósa verður að styrkja rekstrarlegan grunn starfseminnar og skapa fyrirtækinu forsendur til að dafna til framtíðar,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Ósa.

Í kjölfar viðskipta munu Ósar styðja Röntgen Domus með traustum innviðum, stoðþjónustu og rekstrarþekkingu. Fagleg forysta verður áfram í höndum sérfræðinga Röntgen Domus.

„Sem bakhjarl gera Ósar okkur kleift að einblína á faglega sérþekkingu okkar. Við sjáum tækifæri til að þróa þjónustuna áfram og efla okkur enn frekar sem eftirsóknarverðan vinnustað,“ segir Sólveig Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Röntgen Domus.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Um Röntgen Domus

Röntgen Domus er leiðandi fyrirtæki á sviði myndgreiningar á Íslandi. Starfsemin byggir á sérfræðiþekkingu, fagmennsku, gæðum og öryggi. Fyrirtækið er með starfsemi á þremur stöðum; Egilsgötu, Þönglabakka og Bíldshöfða, og þar starfa í kringum 50 manns.

Um Ósa

Ósar eru íslensk samstæða fyrirtækja á sviði heilsu og heilbrigðis. Samstæðan þjónustar heilbrigðisgeirann og stuðlar að bættri heilsu og lífsgæðum landsmanna með sérþekkingu starfsfólks á heilbrigðiskerfinu, fjölbreyttu vöru- og þjónustuframboði og traustum innviðum. Hjá samstæðunni starfa 230 manns.

Fleiri greinar

  • Ósar – lífæð heilbrigðis hf. og Röntgen Domus hafa undirritað samkomulag um að Röntgen Domus verði hluti af Ósa-samstæðunni. Röntgen

    18/06/2026
  • Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara

    22/01/2026
  • Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi

    01/10/2025
  • Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í

    22/08/2025