Ævintýralegur vöxtur Sonett á Íslandi

26/05/2025

Á aðeins fjórum árum hefur notkun Íslendinga á lífrænum hreinsiefnum frá Sonett vaxið yfir 300%. Þessi þróun er ekki tilviljun, heldur afleiðing vaxandi meðvitundar meðal neytenda um mikilvægi þess að velja vörur sem hafa jákvæð áhrif á náttúruna og stuðla að sjálfbærni til framtíðar.

Sonett er í fararbroddi þegar kemur að framleiðslu á lífrænum hreinsivörum sem fara vel með umhverfið. Sonett var stofnað 1977 í þýskalandi og er frumkvöðull í framleiðslu á vistvænum þvotta- og hreinsiefnum. Öll innihaldsefni lífræn og brotna 100% niður í náttúrunni. Engin ensím, petrokemísk yfirborðsefni, engin gerviilmefni, litarefni eða rotvarnarefni. Aðeins náttúruleg efni sem virka. 

Sonett leggur einnig mikla áherslu á samfélagslega ábyrð með stuðning við atvinnuþátttöku fatlaðra og endurkomu fanga til samfélagsins. 

Íslendingar vilja greinilega sjálfbærar og hreinar hreinsivörur fyrir sig og sína.

Fleiri greinar