Minni hætta á þvagfærasýkingum

06/06/2023

Luja™ aftöppunarþvagleggur fyrir karlmenn tryggir fullkomna blöðrutæmingu með Micro-hole Zone Technology*.

Luja™ er fyrsti og eini aftöppunar þvagleggurinn með Micro-hole Zone Technology, sem er hannaður til að minnka áhættu á þvagfærasýkingum* Þegar þvagrennsli hættir er þvagblaðran algerlega tóm. Tilfærsla á þvaglegg er því ekki nauðsynleg.

Luja fæst í tveim pakkningastærðum, standard – eða sem vasapakkning.

Luja er fyrsti og eini aftöppunarþvagleggurinn sem er með yfir en 80 míkró göt en það tryggir samfellt þvagrennsli. Þegar rennslið hættir er blaðran tóm. Þannig veistu að aftöppun er lokið. Enginn þörf er á tilfærslu þvagleggs sem gerir aftöppun auðveldari. Hönnun leggsins miðar að því að tæma blöðruna fullkomlega til að draga úr líkum á þvagfærasýkingum.

Aðrir eiginleikar Luja:

  • Triple Action Coating Technology er yfirborðsmeðhöndlun sem tryggir jafnt, slétt og rakt yfirborð án þurra svæða. Lágmarkar skaða á slímhúð þvagrásar.
  • Sveigjanlegur kúlulaga endi, auðveldar uppsetningu.
  • Mjúkt grip sem tryggir að notandinn hefur fulla stjórn á þvagleggnum við uppsetningu.
  • Þurr varnarfilma umlykur þvaglegginn sem gerir notandanum kleift að setja þvaglegginn upp án þess að snerta yfirborð hans. Varnarfilman tryggir því hreina blöðrutæmingu.

Eftir notkun er hægt að loka þvaleggnum aftur, hægt er að brjóta umbúðirnar saman og loka og farga þar sem hentar. Hlutlausar umbúðir Luja bera þess ekki merki að um hjúkrunarvöru að ræða.

Skoða vöruna á vörutorgi Icepharma

Fleiri fréttir

  • Þann 23. maí síðastliðinn tók Icepharma þátt í Nýsköpunardegi hins opinbera. Markmið Nýsköpunardagsins er að stuðla að auknum opinberum innkaupum

  • Sigríður Lárusdóttir 57 ára lífeindafræðingur lætur ekkert stoppa sig og ætlar sér að taka þátt í boðsundi yfir Ermarsundið þrátt

  • Í dag afhenti Eliza Reid, forsetafrú, Ósum viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar sem er hreyfiaflsverkefni FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu á ráðstefnunni