Heilbrigðir stjórnarhættir og heilsutengdar áherslur
Stjórn Ósa og dótturfélaga gerir sér grein fyrir auknum kröfum sem gerðar eru til fyrirtækja á sviði ábyrgðar gagnvart samfélaginu. Stjórnin leggur því áherslu á heilbrigða stjórnarhætti og að þróa þá stöðugt og styrkja enda leggja þeir grunninn að ábyrgri stjórnun, vandaðri ákvarðanatöku og traustum samskiptum.
Stjórnarhættir samstæðunnar kveða á um hvernig innra skipulag stuðlar að virkri og heilbrigðri stjórnun með markmið samstæðunnar að leiðarljósi. Við viljum hafa áhrif á samfélagið, þ.m.t. starfsmenn samstæðunnar, og stuðla að því að einstaklingar geti viðhaldið heilsu og vellíðan og bætt lífsgæði sín til framtíðar. Stjórnarhættir samstæðunnar taka mið af þessum markmiðum og endurspeglast í heilsutengdum áherslum þegar kemur að stefnumótun, ákvarðanatöku, markmiðasetningu og menningu jafnt í ytra sem og innra starfi.

Heildstæð áhættustjórnun og virkt gæðaeftirlit
Starfsemi Ósa er á ýmsa vegu háð ytri aðstæðum og má þar nefna þann veigamikla áhrifaþátt að stór hluti hennar liggur innan skilgreinds ramma heilbrigðiskerfisins. Starfsemin er þannig vörðuð lögum, reglugerðum og opinberu eftirliti sem kallar á vönduð vinnubrögð í hvívetna. Heilbrigðir stjórnarhættir fela í sér áhættustýringu og eftirlit. Því er lögð rík áhersla á heildstæða áhættustjórnun og virkt gæðaeftirlit sem hluta af daglegum rekstri.

„Við hjá Ósum leggjum áherslu á heildstæða áhættustjórnun með það að markmiði að milda áhættur starfseminnar og að áhættutaka sé í samræmi við áhættustefnuna og skilgreindan áhættuvilja.
Ósar eru með áhættustefnu sem byggir á hugmyndafræði sem tekur mið af ISO 31000 staðlinum. Stefnan stuðlar að samræmdum vinnubrögðum hjá Ósum og dótturfélögum og miðar að því að tilgreina, meta, mæla og stýra áhættum starfseminnar. Meginmarkmiðið er að áhætta umfam viðmið sé meðhöndluð, aðgerðir til mildunar hljóti viðeigandi forgang og að allir aðilar þekki sín hlutverk, boðleiðir og mikilvægi áhættustýringar.
Starfsemi Ósa og dótturfélaga felur í sér ýmsar áhættur sem krefjast sérfræðiþekkingar og innsýnar frá ólíkum starfsmönnum. Þekking og reynsla starfsfólksins okkar skiptir lykilmáli í árangursríkri áhættustýringu.”
Birta Ólafsdóttir, forstöðumaður áhættustýringar hjá Ósum

„Við hjá Ósum leggjum áherslu á heildstæða áhættustjórnun með það að markmiði að milda áhættur starfseminnar og að áhættutaka sé í samræmi við áhættustefnuna og skilgreindan áhættuvilja.
Ósar eru með áhættustefnu sem byggir á hugmyndafræði sem tekur mið af ISO 31000 staðlinum. Stefnan stuðlar að samræmdum vinnubrögðum hjá Ósum og dótturfélögum og miðar að því að tilgreina, meta, mæla og stýra áhættum starfseminnar. Meginmarkmiðið er að áhætta umfam viðmið sé meðhöndluð, aðgerðir til mildunar hljóti viðeigandi forgang og að allir aðilar þekki sín hlutverk, boðleiðir og mikilvægi áhættustýringar.
Starfsemi Ósa og dótturfélaga felur í sér ýmsar áhættur sem krefjast sérfræðiþekkingar og innsýnar frá ólíkum starfsmönnum. Þekking og reynsla starfsfólksins okkar skiptir lykilmáli í árangursríkri áhættustýringu.”
Birta Ólafsdóttir, forstöðumaður áhættustýringar hjá Ósum
Áhersla á net- og upplýsingaöryggi aldrei verið meiri
Evrópa hefur mótað nýjar leikreglur í málefnum net- og upplýsingaöryggis sem fylgja breytingar sem hafa haft mikil áhrif á ábyrgð á netöryggi og rekstrarþol aðila sem falla undir regluverkið. Markmið okkar hefur verið að breyta regluverkinu í stefnu sem mun skila samstæðunni allri raunverulegum árangri og mögulegu samkeppnisforskoti með auknu trausti viðskiptavina og annarra hagaðila. Ósar hafa þannig, samhliða auknum kröfum og sívaxandi hættu á netógnum, sett net- og upplýsingaöryggi í algjöran forgrunn undanfarin ár. Lögð hefur verið rík áhersla á að byggja upp öfluga innviði og skýra verkferla til þess að geta betur stýrt áhættu, styrkt varnir gegn aðsteðjandi ógnum og ekki síst að tryggja betur yfirsýn æðstu stjórnenda. Samhliða höfum við lagt áherslu á að tryggja öryggi í aðfangakeðju okkar.
Með því að gera skýrar kröfur til okkar sjálfra sem og til samstarfsaðila viljum við hafa jákvæð áhrif á aðfangakeðjuna, stunda góða og heilbrigða stjórnarhætti, uppfylla lög og reglur og stuðla þannig enn frekar að samfélagslegri ábyrgð okkar í því samhengi.
Við veljum samstarfsaðila sem samræmast gildum okkar
Breytt landslag gerir nú ríkari kröfur á mörgum sviðum til fyrirtækja að hafa samfélagslega góð áhrif í gegnum aðfangakeðju sína. Við hjá Ósum viljum sýna ábyrgð í verki og höfum sett okkur stefnu um val á samstarfsaðilum sem starfa eftir sömu gildum og samstæðan. Stefnunni til stuðnings höfum við útbúið siðareglur fyrir samstarfsaðila okkar og sett lágmarksviðmið um þær öryggiskröfur sem aðilar sem þjónusta samstæðuna um rekstur á upplýsingakerfum þurfa að uppfylla. Með þessu er ætlun okkar að gefa góða mynd af því til hvers við ætlumst af okkar samstarfsaðilum.
Með því að gera skýrar kröfur til okkar sjálfra sem og til samstarfsaðila okkar viljum við hafa jákvæð áhrif á aðfangakeðjuna og stuðla þannig enn frekar að samfélagslegri ábyrgð okkar í því samhengi.
Leiðarljós Ósa
Leiðarljós Ósa vísa starfsfólki veginn í daglegum störfum og samskiptum og eru stór þáttur í að skapa jákvæða og góða vinnustaðamenningu. Leiðarljósin eru afrakstur stefnumótunarvinnu þar sem allt starfsfólk samstæðunnar tók þátt og markaði í sameiningu samskiptasáttmálann. Leiðarljósin eru átta talsins og eru eftirfarandi:
- Við komum vel fram hvert við annað
- Við tölum við fólk en ekki um fólk
- Við hlustum af athygli og sýnum áhuga
- Við segjum það sem okkur býr í brjósti og veljum stað og stund
- Við gætum hvert annars og veitum stuðning
- Við deilum hugmyndum og fögnum ólíkum sjónarmiðum
- Við höfum rými til að læra og þroskast í samskiptum
- Við nýtum tækifærin til að hrósa hvert öðru
Leiðarljósin eru til þess ætluð að leiðbeina og styrkja okkur í samskiptum og eru þau orðin mikilvægur hluti af daglegum störfum og samskiptum í samsteypunni.




