Lyfjaskammtari

Yfir 250.000 lyfjaskammtar afhentir með Evondos

30/12/2023

Yfir 250 þúsund lyfja­skammt­ar hafa nú verið af­hent­ir með sjálf­virka lyfja­skammt­ar­an­um frá Evondos hér á landi. 

Tvö ár eru liðin frá því að fyrstu lyfja­skammt­ar­arn­ir fóru inn á einka­heim­ili og hafa nú þegar yfir þrjú hundruð ein­stak­ling­ar nýtt sér þjón­ust­una á Íslandi með frá­bær­um ár­angri.

Evondos er sjálfvirkur lyfjaskammtari og hentar vel einstaklingum sem búa heima en þurfa daglega eða oftar aðstoð og eftirfylgni við lyfjainntöku. Evondos lyfjaskammtarinn tryggir rétta lyf á réttum tíma. Í tækið eru settar lyfjarúllur með lyfjapokum sem geta dugað í allt að heilan mánuð ef einstaklingur er að taka lyf tvisvar á dag. Tækið les þær upplýsingar sem koma fram á hverjum lyfjapoka og gefur frá sér áminningu á íslensku, hljóðmerki/raddleiðbeiningu og tilkynningu á skjá, þegar einstaklingur á að taka lyfin sín.

Evondos lyfjaskammtarinn er ein af þeim mörgu vörum sem velferðartæknisvið Icepharma hefur á undanförnum árum innleitt fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Eitt af megin markmiðum velferðartæknisviðs Icepharma er að auka lífsgæði og sjálfstæði fólks og gera því kleift að búa lengur í öryggi heima við.

 

Fleiri fréttir