Heilbrigður jarðvegur fyrir heilsubætandi starfsemi

Heilsa er grunnstoð allrar starfsemi Ósa. Við hlúum að heilsu starfsfólks með fjölbreyttum hætti, á sama tíma og starfsfólkið leggur sitt af mörkum daglega til að bæta heilsu og lífsgæði landsmanna.

Dótturfélög samstæðunnar sinna fjölbreyttum geirum heilsu – allt frá lyfjum, hjúkrunarvörum og frjósemisþjónustu til vítamína, tannbursta og hlaupaskóa.

Með þessari breidd í vöru- og þjónustuframboði, ásamt ástríðu og sérþekkingu starfsfólks, gegnum við lykilhlutverki í að efla heilsu á ólíkum sviðum samfélagsins.

Heilsa og vellíðan í fyrirrúmi

Við erum heilsumiðaður vinnustaður og leggjum áherslu á að stuðla að góðri líkamlegri, félagslegri og andlegri heilsu starfsmanna okkar. Það gerum við með því að bjóða upp á:
  • Hollan mat í hádeginu og hollt millimál
  • Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
  • Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
  • Reglulega heilsufyrirlestra á vinnutíma
  • Styrki úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
  • Heilsufarsmælingar
  • Líkamsræktarstyrki
  • Sveigjanleika í skipulagi vinnu og vinnutíma, þar á meðal möguleika á fjarvinnu

Tækifæri til vaxtar

Við hvetjum okkar fólk til dáða og veitum þeim tækifæri til að vaxa og dafna í sínum störfum með því að bjóða upp á:
  • Aðgengi að fjölbreyttri fræðslu á fræðsludagskrá Ósa
  • Fræðslustyrki vegna starfstengdra námskeiða og náms
  • Þátttöku í rýnihópum í tengslum við úrbótaverkefni
  • Fræðslu fyrir fyrir þá sem nálgast eftirlaunaaldur um tækifæri þeirra tímamóta sem framundan eru

Starfsandi og félagslíf

Okkur er annt um að fólkið okkar upplifi heilbrigt starfsumhverfi og góðan liðsanda á vinnustaðnum. Því bjóðum við upp á:
  • Reglulegar starfsánægjukannanir
  • Öflugan innri samskiptamiðill
  • Starfsmannafélög
  • Reglulega viðburði

Jafnrétti og jöfn tækifæri

Samstæðan fylgir jafnlaunastefnu og aðgerðaráætlun í jafnréttismálum sem leggur áherslu á jafnan rétt og jafna stöðu starfsfólks óháð kyni.
  • Jafnlaunavottun

Samfélagsleg ábyrgð okkar allra

Áhersla á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð Ósa og dótturfélaganna hefur vaxið jafnt og þétt og því gleður það okkur mjög að birta nú sameiginlega samfélagsskýrslu sem tekur til allrar samstæðunnar.  Skýrslan gefur góða mynd af starfseminni og því mikilvæga hlutverki sem félögin gegna í samfélagslegu tilliti.