Camelbak leggur Mottumars lið með sölu á brúsum

18/03/2023

Mars er mættur sem þýðir að Mottumars er hafinn. Eins og fyrri ár er hann tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum, en árlega greinast 892 karlmenn með krabbamein. Í dag eru 7.630 karlmenn á lífi sem greinst hafa með krabbamein.

Í Mottumars tekur félagið höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og aflar fjár fyrir mikilvægum stuðningi við karla og fjölskyldur þeirra.

Skartaðu mottunni

Einkennismerki Mottumars er yfirvaraskeggið. Mottukeppnin er hafin og lýkur 31. mars og því er ekki eftir neinu að bíða. Þátttakendur eru hvattir til að skarta mottu og skrá sig til leiks á mottumars.is. Þar geta vinir, vandamenn og landsmenn allir lagt málefninu lið með því að heita á keppendur.

Camelbak leggur átakinu lið en 1000 krónur af hverjum seldum brúsa munu renna beint til Krabbameinsfélagsins. Hvetjum við því sem flesta til þess að skella sér á nýjan brúsa af þessu góða tilefni.

Fleiri greinar

  • Árið 2025 var nýtt auglýsingaefni fyrir NOW bætiefni unnið af flottu teymi markaðssérfræðinga og hönnuða hjá Ósum ásamt ljósmyndaranum Ara

    22/01/2026
  • Á ráðstefnunni Hjúkrun 2025 kynnti Icepharma Velferð nýju fjarheilbrigðislausnina Unu Heilsu. Una er lausn sem eykur öryggi og bætir aðgengi

    01/10/2025
  • Árið 2024 opnaði Sunna frjósemisstofa starfssemi sína í Urðarhvarfi. Sunna var stofnuð með það að markmiði að veita fólki í

    22/08/2025